Námskeið
6. – 9. október 2026
Seigla, streita, samskipti, meðvirkni!
Meiri seigla - minni streita- betri samskipti!
Áhrifaríkt námskeið sem eflir þig í líf og starfi.
Styrkt af flestum sí- og starfsmenntasjóðum.
Heillandi, samstarf Kristínar Sigurðardóttur og Gyðu Drafnar Tryggvadóttur, bjóða upp á vinsæl námskeið og vinnustofur um seiglu, streitu, samskipti og meðvirkni!
Viltu staldra við og :
- efla seiglu til að takast á við breytingar og áskoranir
- auka færni samskipta og gleði
- þekkja og skilja jákvæð og neikvæð áhrif streitu
- læra að setja heilbrigð mörk
- skilja áhrif álags og áfalla á líðan og samskipti og læra leiðir til að bæta úr
- bæta endurheimt og auka orku
- vera betur til staðar
- minnka líkur á kulnun í starfi
- dafna, vaxa og bæta árangur
Hvar:
Hótel Grímsborgir
Hefst kl 11 þriðjud 6. október og lýkur kl. 14 föstud 9. október.
Verð: 219.000 pr. mann í tvíbýli (256.000 ef einstaklingsherbergi)
Innifalið:
Gisting í 3 nætur, matur og námskeið.
Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, núvitund, endurheimt og viðveru í náttúrunni.
Kennarar:
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. (PIT) daglega kallað meðvirkni. Hún er með vinsæla fræðslu, kennir í HR og hefur iðkað Zen hugleiðslu í 25 ár.
Kristín Sigurðardóttir, slysa-og bráðalæknir, með heildræna sýn á heilsu og hefur alla tíð sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Hún er fyrrum kennslustjóri Bráðadeildar LSH og formaður fræðslustofnunar Lí. Hún kennir við Læknadeild HÍ, Háskólann í Reykjavík og situr Lýðheilsusráði LÍ. Hún er vinsæll fyrirlesari og sinnir fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Námskeið sem gefur verkfæri sem nýtast vel í starfi. Faglegt efni, gagnreynd þekking, framsetning hagnýt og á mannamáli.
Áhersla er lögð á seiglu og streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl og meðvirkni - einkenni og áhrif á líf, líðan, sambönd og samskipti.
Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti. Þau hafa m.a. áhrif á starfsfærni, vinnustaðamenningu og árangur.

